Við notum vafrakökur til að bæta notendaupplifun. Með því að nota þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum.

Lífssýn okkar

Lífssýn okkar

Slow Travel

Slow Travel Mývatn

Slow Travel Mývatn er sprottið úr þeirri ósk að gera lífssýn okkar að lífsmáta. Í beinni snertingu við náttúruna og íslenskar hefðir geta gestir okkar dvalið hér og nýtt tímann til að komast nær sjálfum sér og umhverfinu.

Meginmarkmið okkar

Slow Travel Mývatn nýtir sérkenni svæðisins, menningu, sögu og hefðir til að bjóða gestum okkar einstaka og ógleymanlega dvöl í samræmi við grunngildi Slow travel stefnunnar.

Slow Travel Mývatn býður upp á ró, hægfara, meðvitaða og sveigjanlega dvöl.

Slow Travel Mývatn leggur áherslu á umhverfisvæna og sjálfbæra ferðamennsku í samhljómi við náttúruna og íbúa svæðisins

Gestir okkar

Fólk á öllum aldri er hjartanlega velkomið til okkar.

Gestir okkar ferðast í rólegheitum, á umhverfisvænan hátt og í fámennum hópum.

Þeir vilja kynnast kjarna lands og náttúru og víkka þekkingu á menningu og hefðum.

Gestir velja húsið okkar, vegna þess að þeir vilja dvelja lengur á sama stað. Þeir sækjast eftir góðri upplifun, ró, jafnvægi og slökun.